Prentað miðvikudaginn 8. september kl. 23:05 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ætlar þú í leikhús í vetur?

Já, örugglega

Já, sennilega

Veit ekki

Nei, sennilega ekki

Nei, örugglega ekki

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Skessuhorn, 8. september 2010

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 2. september síðastliðinn að lengja daglegan opnunartíma leikskóla sveitarfélagsins til klukkan 16:30. Breytingin tekur gildi 1. október næstkomandi. “Föstudagslokun vegna starfsmannafunda verður óbreytt út yfirstandandi ár en byggðarráð felur fræðslunefnd að skoða möguleika að breyttu fyrirkomulagi frá og með árinu 2011,” segir í tilkynningu frá Borgarbyggð.  

 

 

 

 

 

Skessuhorn, 8. september 2010

Að undanförnu hefur sérstætt mál verið á vitorði fámenns hóps á Akranesi og þar gjarnan verið talað um „stóra kaffikönnumálið“ í gríni frekar en alvöru. Nú er grínið hins vegar orðið að alvöru þar sem búið er að álykta um það í stjórn Akranesstofu, þeim hluta bæjarkerfisins sem það fellur undir. Mál þetta snýst um snögg eigendaskipti sem urðu á kaffikönnu í eigu Byggðasafnsins að Görðum í sumar og aðkomu varabæjarfulltrúa og embættismanns bæjarins að málinu. Komið var og náð í kaffikönnuna á miðjum degi þar sem hún var í notkun í Garðakaffi. Hafði kannan verið seld til notkunar hjá samkeppnisaðila á Akranesi, án þess að rekstraraðilum Garðakaffis gæfist kostur á að kaupa könnuna eða gera aðrar ráðstafanir til að geta áfram hellt upp á kaffi.

 

 

 

Skessuhorn, 8. september 2010

Byggðaráð Dalabyggðar hefur samþykkt að komið verði upp skilti við Guðrúnarlaug að Laugum í Sælingsdal þar sem umgengnisreglur verði skýrðar. Upplýst var á fundi byggðarráðs að vandamál hafi skapast vegna ölvunar og óláta við laugina og óskað var eftir að Dalabyggð leiti lausnar á vandamálinu þannig að ekki valdi truflun á svæðinu. Lagt var til að leitað yrði leiða svo unnt verði að loka lauginni ef þurfa þykir. Þá verður samið um eftirlit með lauginni við endurskoðun samninga við Ungmennabúðir og Hótel Eddu en einnig kom fram á fundinum að endurskoða þurfi samstarfssamning milli Dalabyggðar, Dalagistingar og Ungmennabúða m.a. þar sem breytingar hafa orðið á opnun og umsjón íþróttamannvirkja frá því að núverandi samningur var gerður.

 

 

 

 

Skessuhorn, 8. september 2010

Togbáturinn Skinney SF-20 tilkynnti í morgun um að í veiðarfærin hafi komið hlutur sem líktist tundurdufli. Síðar var duflið híft um borð þar sem það liggur á þilfari skipsins. Að sögn bátsverja, sem vísir.is ræddi við nú í hádeginu, er um óvenjulega heillegt dufl að ræða. Þegar duflið kom í veiðarfærin var báturinn staddur á humarveiðum í Jökuldjúpi suður af Snæfellsnesi. Siglt var áleiðis til Rifs og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar kallaðir út. Eru þeir nú á leið til skipsins.

 

 

 

 

Skessuhorn, 8. september 2010

Síðastliðinn laugardag var mikið um að vera hjá Golfklúbbi Staðarsveitar. Þá var haldið á Garðavelli undir Jökli hið árlega Tuddamót sem er hápunktur golfsumarins hjá félaginu. Mót þetta er allt í senn opið punktamót, liðakeppni Golfklúbbs Staðarsveitar og Golfklúbbs Guttorms tudda en síðast en ekki síst meistaramót GST. Þátttakendur voru um 30 talsins og sáust af og til glæsileg tilþrif hjá kylfingunum en einnig arfaslæm högg eins og gengur.  Aðstæður voru mjög góðar, eða 17 stiga hiti og golfvöllurinn skartaði sínu fegursta; hefur ekki verið grænni og gróskumeiri í allt sumar og hefur greinilega tekið fagnandi á móti ágústvætunni. Um kvöldið var síðan blásið til veislu í Langaholti þar sem verðlaun voru veitt, snædd þriggja rétta máltíð að hætti hússins og drukkinn bjór úr bala.

 

 

 

Skessuhorn, 8. september 2010

Um þessar mundir er starfsemi tónlistarskólanna á Vesturlandi að hefjast af krafti. Blaðamenn Skessuhorns tóku á síðustu dögum hús hjá skólastjórum sex tónlistarskóla á Vesturlandi. Blað þessarar viku er að stórum hluta helgað kynningu á því helsta sem í gangi er á vettvangi þeirra. Um leið er fræðst svolítið um bakgrunn sjálfra skólastjóranna. Allir eru þeir tónlistarmenn að upplagi og því listamenn hver á sínu sviði.

Sjá ítarlega umfjöllun um vestlenska tónlistarskóla í Skessuhorni sem kom út í dag.

 

 

 

 

 

 

 
Vefpóstur
Á döfinni
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 22:50  ANA 7  14°C
Akrafjall 22:50  NA 7  14°C
Hafnarfjall 22:50  NA 3  12°C
Vatnaleið 22:50  Logn 11  88%°C
Hraunsmúli 22:50  ANA 1  11°C
Fróðárheiði 22:40  ANA 0  11°C
Brattabr. 22:40  ANA 3  11°C
Holtav.h. 22:50  NNV 3  8°C
Laxárdalsh. 22:50  A 6  9°C
Svínad. 22:50  NA 1  12°C
 
Akrafjall 22:00  ANA 6  13,4°C
Ásgarður 22:00  NA 5  13,6°C
Brattabrekka 22:00  ASA 1  10,3°C
Fróðárheiði 22:00  NA 1  11,1°C
Grundarfj. 22:00  Logn 0  10,8°C
Gufuskálar 22:00  A 2  10,6°C
Hafnarfjall 22:00  SV 1  13,4°C
Holtavörðuheiði 22:00  N 4  7,8°C
Hraunsmúli 22:00  NV 2  11,9°C
Húsafell 22:00  A 2  12,0°C
Hvanneyri 22:00  NA 2  10,9°C
Kjalarnes 22:00  ANA 7  13,8°C
Reykhólar 22:00  NA 5  13,2°C
Stykkishólmur 22:00  A 4  12,4°C
Vatnaleið 22:00  N 1  11,1°C
 
Starfsfólk óskast
Ferðaskrifstofa óskar eftir duglegu starfsfólki. Góð laun í boð fyrir duglegt fólk. Endilega hafið samband í tölvupósti og við munum hafa samband eins fljótt og auðið er.
 
Týndur Labrador
Vaskur hvarf frá heimili sínu á Mýrum í Borgarf. í júní í sumar. Hann er 2ja ára, ljósgulur og stór en blíður. Gæti verið að hann hafi verið tekinn með sölu í huga eða fólk talið hann týndan. Hafi einhver upplýsingar um málið er síminn 695-2583.
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
Jóhannes F Stefánsson: Tekinn!
Lilja Rafney Magnúsdóttir: Nú er tækifæri til breytinga
Ásthildur Sturludóttir: Brandarinn um vegina á Vestfjörðum
Níels A Ársælsson: Sannleiksnefnd um kvótakerfið
Þórólfur Sveinsson: Umræða um evrópusambandsaðild
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
Brekkubæjarskóli: Busadagur - busaball
Brekkubæjarskóli: Alþjóðadagur læsis
Framleiðnisjóður Landbúnaðarins: Næsti stjórnarfundur
 
mbl.is - innlent